Einar meinar margt og mikið
Könnun
Lest þú þessa bloggsíðu?

28.08.2009 21:58:40 / einarhaf

Orð í fellingum

Útvíðu lesendur.


Nornaveiðarnar eru hafnar! Nafnlaus rógburður um fræga menn og merkileg málefni í boði Einars Haf – nafnlaust. Með sínu gengdarlausa og nafnlausa froðusnakki hefur Einari tekist nafnlaust að draga heiðarlega og alls ekki siðspillta einstaklinga úr viðskiptalífinu niður í svaðið og ýtt undir ofsóknir og skemmdarverk. Í nafnlausri yfirlýsingu neitaði Einar að tjá sig um málið og benti þess í stað á þennan inngang. Eins og annar rógburður á netinu er þess inngangur að sjálfsögðu skrifaður undir nafnleynd.


Fyrrverandi gróðamaskínan Exista, sem enginn veit hvað gerir í raun og veru, á nú í talsverðum vandræðum. Bakkavararbræður sem eiga Exista eiga í nokkrum erfiðleikum með að henda reiður á stöðu mála, enda krosseignarhald þeirra á hinum ýmsu félögum og fyrirtækjum orðinn nokkuð þungur kross. Þeir sem stórir hluthafar í Kaupþingi munu koma til með að þurfa að ganga hart fram gegn sjálfum sér í innheimtuaðgerðum, enda á Kaupþing inni pening hjá Exista og öfugt. Skipti, sem er í eigu Exista sem er í eigu Bakkavararbræða sem eiga Bakkavör og stóran hlut í Kaupþingi sem lánaði Skiptum fyrir kaupum á Símanum sem er að hluta til í eigu Kaupþings sem er í eigu ríkisins sem er í eigu almennings, skuldar Kaupþingi billjón trilljón vegna einkavæðingar Símans fyrir nokkrum árum. Síminn er hins vegar alltaf á tali og skilar þess vegna aldrei þeirri arðsemi sem ætlast var til í upphafi. Eins og gefur að skilja er þetta mál mjög flókið og erfitt viðurreignar – en góðu fréttirnar eru þó þær að árlegur rekstrarkostnaður Exista, sem enginn veit hvað gerir í raun og veru, mun samkvæmt áætlun lækka úr 1.008.000.000 krónum í 150.000.000 krónur. Ef í harðbakkann slær er alltaf hægt að sækja um greiðsluaðlögun – þó það þýði að klippt verði á kreditkortin.


Önnur fyrrverandi gróðamaskína Stoðir láta forstjóra fyrirtækisins svo sannarlega finna fyrir því. Hvergi á byggðu bóli myndi forstjóri með virðingu láta sig hafa það að lækka í launum um 70%. Að vísu voru launin um 5 milljónir fyrir þannig að ein og hálf milljón á mánuði verður að teljast ágætt hjá tæknilega gjaldþrota fyrirtæki.


Meira af peningum. Lögmannsstofa á Akureyri gleymdi óvart að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu í þrotabú Straums fyrir hönd Stapa nú á dögunum. Sjálfur gleymdi ég hundraðkalli í vasanum á gallabuxunum mínum nýverið og var svekktur með það – og get því vel skilið að lögmaðurinn og Stapi séu báðir svekktir yfir þessu. En öll erum við mannleg og getum átt til að gleyma stöku hlutum stöku sinnum. Jafnvel fjórum milljörðum.


Undanfarið hafa þingmenn verið fullir......áhuga um að klára ákveðin mál sem hvíla þungt á þeim og þjóðinni. IceSave málið er þar auðvitað fremst í flokki. sem og verðlag á léttvínum. Eftir að hafa drukkið.....í sig fróðleik um IceSave málið steig Sigmundur Ernir í pontu seint um kvöld seint í síðustu viku fullur......efasemda. Með ræðu sinni hugðist Sigmundur sýna stjórnarandstöðunni fram á hvar Davíð keypti ölið. Reyndar kom síðar á daginn að Sigmundur hafði drukkið meiripartinn af ölinu, sem var raunar keypt af MP banka og gefið í kvöldverðarboði. Láttu ekki vín breyta þér í svín. Áfengi fylgir ábyrgð. Öl er böl. Eftir einn – ei haldi þingræðu neinn. Sigmundi til málsbóta lítur IceSave samningurinn örugglega mun betur út eftir nokkur rauðvínsglös.


Og talandi um IceSave þá hefur ríkisstjórninni nú loks tekist að negla aftur kistulokið með þrjátíu og fjórum galvaniseruðum nöglum. Hverjir eru í kistunni, grafnir lifandi? Það er gáta dagsins. Ef það gefur ykkur einhverja vísbendingu var þjóðin komin á grafarbakkann áður en atburðir dagsins riðu yfir....samkvæmt nafnlausum rógburði.


Göngur og réttir eru nú innan seilingar, enda haustið að skella á með óhugnanlegum þunga. Fjallskilanefnd stóð ekki í skilum að þessu sinni og því skipaði Dalvíkurbyggð sérstaka skilanefnd með þaulreynda fjárinnheimtumenn innanborðs. Hugsanlega frá Intrum.


Tíminn er eins og IceSave
og IceSave er djúpt og kalt
eins og vitund mín sjálfs.

Og IceSave er eins og mynd
sem máluð er af Bretum
og Hollendingum til hálfs.

Og peningar þjóðarinnar
renna veglaust til þurrðar
inn í IceSave mín sjálfs.


Þess má geta að ég skrifaði þessa bloggfærslu með mótmælendur úr Saving Iceland hlekkjaða við mig.


Einar í boði MP banka.


Tilvitnun dagsins:
Sögumaður: Síminn hringdi.
Ring Ring.
Sögumaður: Harrý greip um tólið....
Harrý: Ahhhh....
Sögumaður: Nei, símtólið fíflið þitt!

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2009 10:15:12 / einarhaf

Orð á menningarlegum nótum

Reynsluöktu lesendur.


Þá er komið að því að taka sig saman í andlitinu, taka sig á og taka af skarið varðandi bloggfærsluna sem alþjóð hefur ekki beðið eftir með öndina í hálsinum. Eftirspurnin er neikvæð þegar þokulúðurinn geðþekki Einar Haf tappar af sér innihaldslausu gaspri og setur í skiljanlegan búning. Það tekst oftast – nema í inngöngum. Þeir eru alltaf jafn óskiljanlegir.


Þess má geta að það er ekki búið að afgreiða IceSave málið.


Í gær fór fram menningarnótt í Reykjavík. Líkt og jafnan áður var menning höfð þar að leiðarljósi. Það voru hæg heimatökin enda ekki þverfótað í Reykjavík fyrir listaspírum, treflum, blönkum tónlistarmönnum, útigangsmönnum og öðrum sem lifa á styrkjum og bótum og halda bæjarbragnum á lofti um leið með gróskumiklu starfi. Ótal margar uppákomur og uppáferðir voru á dagskrá helgarinnar með tilheyrandi skemmtanahaldi og drykkjuskap. Það er jú íslensk menning og ekkert við því að gera. Býsna spennandi var að fylgjast með því hvernig afar fámennu og illa launuðu lögregluliði tókst að halda menningunni í skefjum – en táragasið og kylfurnar voru svo sem ekki langt undan.


Nýjustu fréttir herma að það sé ekki búið að afgreiða IceSave málið.


Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka var haldið í gær venju samkvæmt. Fjölmargir keppendur af öllum stærðum og gerðum hlupu sem fætur toguðu þvers og kruss um malbikuð torg og stræti og höfðu gaman af – hvort sem um var að ræða skemmtiskokk, skemmtisjokk, maraþonhlaup, lífsgæðakapphlaup, upphlaup, áhlaup, rækjuhlaup, ávaxtahlaup, jogg, þramm, kjag, labb, brokk eða einhverja aðra fyndna eða ófyndna tegund af hlaupi eða labbi. Til að halda uppi hraðanum í maraþonhlaupinu var Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, fenginn til að vera héri og hlaupa á undan. Þetta svínvirkaði, enda voru hinir hlaupararnir æstir í að ná í hnakkadrambið á Bjarna. Það tókst þeim auðvitað ekki. Á fjölmörgum drykkjarstöðvum í maraþonhlaupinu bauð Íslandsbanki hlaupurunum upp á hressingu. Þar var á ferðinni mysa í boði skilanefndarinnar, en að vísu var maðkur í henni og hún því ódrekkandi. Sigurvegari hlaupsins fékk að launum niðurfellingu skulda í boði Íslandsbanka.


Frá Alþingi er það helst að það er ekki búið að afgreiða IceSave málið.


Robert Tchenguiz, auðmaður, hefur nú verið settur í djúpfrystingu á Tortola eyjum vegna gruns um glæpsamlega gott lánstraust hjá Kaupþingi á blómaskeiði bankans. Í rassvasa Tchenguiz fundust 50 milljarðar króna – sem voru umsvifalaust settir í frysti. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, bað alla aðra en þjóðina afsökunar á þessu.


IceSave málið er enn á dagskrá Alþingis. Enn eru nokkrir þingmenn á mælendaskrá. Hvað þeir eru að mæla er ekki vitað.


Þrátt fyrir fjör og gleðilæti,
hallar áfram undan fæti.
Auðmenn geymdir frysti í
og lóan syngur dirrindí.


Meðan þessi bloggfærsla fór fram var rauð-sanseraðri málningu skvett sjö sinnum á bíl og hús Björgólfs Guðmundssonar – tvær umferðir utan og innan húss. Málararnir sem koma fram í Flugger-auglýsingunum eru sterklega grunaðir um athæfið.


Ps. Það er ekki búið að afgreiða IceSave samningana.


Einar á formælendaskrá.


Tilvitnun dagsins:
Ted: You're not... Moby, are you?
Not Moby: Who?
Ted: The recording artist, Moby.
Not Moby: Oh, no.
Ted: Then why, when we said "Hey, Moby" did you come over here?
Not Moby: Oh, I thought you said Tony.
Ted: So your name's Tony?
Not Moby: No.

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2009 21:55:02 / einarhaf

Orð á flösku

Yfirskilvitlegu lesendur.


Hann er kominn í gegn, frábær sending. Hvað gerir hann, einn gegn markmanni. Hann leikur á markmanninn, hann hlýtur að skora! Nei, á einhvern óskiljanlegan hátt brennir hann af fyrir opnu marki. Algjört dauðafæri, þvílíkt klúður. Lesendum fallast hendur þegar bloggaranum Einari bregst enn einu sinni bogalistin þegar mest á reynir. Það ætti að vera orðið öllum ljóst, ekki satt?


Hin æsispennandi og hádramatíska framhaldssaga um IceSave og fyrirvarana sjö heldur enn áfram. Eftir stíf fundarhöld hefur málið nú verið afgreitt úr nefnd og varð það tilefni til stanslausra faðmlaga og skælbrosa. Hvers vegna nákvæmlega er samt ekki vitað. Í ljósi þess að Íslendingar eru búnir að samþykkja að greiða stóran hluta þess sem bankabramboltið sturtaði ofan í klóakið snýst eftirleikurinn fyrst og síðast um að klóra í bakkann. Búið er að setja alls kyns fyrirvara við ríkisábyrgðina, þar á meðal fyrirvara um að þetta sé ömurlega ósanngjarn samningur, fyrirvara um að þrátt fyrir að samningurinn geri Ísland gjaldþrota þýði það ekki að Ísland sé ekki sjálfstætt lýðveldi og fyrirvara um að ekki megi gjaldfella samninginn fyrirvaralaust – svo fátt eitt sé nefnt. Almennt sætta þingmenn sig við þessa niðurstöðu, enda orðnir leiðir á leiðindamálum sem þessu. Þess vegna er fastlega búist við því að ríkisábyrgðin fljúgi gegnum þingið, Ísland fljúgi inn í ESB og þaðan eitthvað út í buskann. Stór hluti þjóðarinnar flýgur til Noregs – aðra leiðina. Gengisvísitala krónunnar flýgur upp í loft, bensínlítrinn er á fljúgandi siglingu og Iceland Express ætlar að fljúga frá Akureyri til London. Þá er flugtíðindum lokið að sinni, verið þið sæl.


Endurfjármögnun gömlu nýju bankanna hefur dregist nokkuð á langinn. Sérfræðingar skilanefndanna hafa í sjálfboðavinnu (hahaha) unnið baki brotnu (hahaha) myrkranna á milli (hahaha) við að færa eignir úr þrotabúum gömlu bankanna yfir í nýju bankana og reyna að setja saman efnahagsreikning með einhverjum eignum, sem gæti reynst þrautin þyngri. Samningaviðræður skilanefndanna við erlenda kröfuhafa hafa gengið brösulega, enda kröfuhafar afar kröfuharðir. Eins kom það skilanefndunum í opna skjöldu að erlendu kröfuhafarnir töluðu eintóma útlensku og þess vegna hafa samningaviðræðurnar dregist enn frekar á langinn. Kröfuhafarnir hafa sett fram alls kyns kröfur í samningaferlinu, þar á meðal kröfu um klukkutíma matarhlé, kröfu um ótakmarkaðan aðgang að salernisaðstöðu og kröfu um baknudd frá sérfræðingum skilanefndanna til að liðka fyrir hagstæðri samningsniðurstöðu.


Norski túristinn sem séð hefur um að halda stóli Seðlabankastjóra heitum undanfarna mánuði ákvað fyrir skömmu að stýrivextir skildu haldast óbreyttir hér á landi, 12%. Þessi ákvörðun kom ekki á óvart, raunar kom þetta svo lítið á óvart að greiningardeildir bankanna gátu séð þetta fyrir – og þá er mikið sagt. Búist er við því að stýrivextir haldist óbreyttir alveg þar til næsta ákvörðun um stýrivexti verður tekin. Greiningardeildir bankanna spá því að í næstu stýrivaxtaákvörðun verði vextirnir annað hvort lækkaðir eða hækkaðir. Einnig sé ekki hægt að útiloka að þeir haldist óbreyttir.


Elsti maður í heimi lést nýlega í hárri elli. Sá sem var elstur á undan honum hafði hlotið sömu örlög og raunar virðast elstu menn í heimi vera mjög gjarnir á að hrökkva upp af. Það er því afar vafasamt að hljóta nafnbótina elsti maður í heimi, enda yfirgnæfandi líkur á að nafnbótin dragi menn til dauða.


Til hægðarauka fyrir lesendur hugðist ég senda þessa bloggfærslu til þeirra í tölvupósti en ég sendi tölvupóstinn óvart á alla fjölmiðla í staðinn. Ég tók hins vegar hvergi fram að Þráinn Bertelsson væri með Alzheimer á byrjunarstigi – svoleiðis skrifar maður ekki í tölvupósti.


Leyndarmálin hvergi örugg eru,
trúnaðurinn út um þúfur fer.
Lekið geta gögn í allar áttir -
út í móa fann ég krækiber.


Þessi bloggfærsla lak út úr fjárlaganefnd og lak þaðan í fjölmiðla. Búið er að stoppa fyrir lekann en til þess var notað einangrunarlímband.


Einar með kvef.


Tilvitnun dagsins:
Ryan Stiles: [Beach hoedown] I went to the beach one day, and the water was cold/ I went in because I thought that I was bold/ When I jumped in, it was colder than I feared/that was the day that my penis disappeared!

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 22:12:39 / einarhaf

Orð á þjóhnöppunum

Góðkunnu lesendur.


Nei þetta er ekki ný bloggfærsla, þetta er bloggfærslan síðan um daginn. Einar er ekki búinn að blogga, þetta er bara röddin í höfðinu á þér sem telur þér trú um að hér standi eitthvað nýtt og ferskt.....allt í lagi, kannski er þetta ný bloggfærsla. Hins vegar eru þetta alveg sömu orð og í síðustu bloggfærslu, bara í öðruvísi röð.


Eins og fram hefur komið hefur varla verið þverfótað undanfarið fyrir djammi og djúsi ýmiskonar. Djammarinn Einar {innskot höfundar: ég}hefur auðvitað ekki látið þessi gleðilæti framhjá sér fara og vaðið uppi með hipp, hipp og húrra. Eftir að hafa farið á Eina með öllu og fengið sér eina með öllu {innskot höfundar: pylsu} var komið að Fiskideginum mikla á Dalvík. Enn eitt árið tókst aðstandendum fiskidagsins að halda hann stórslysalaust þrátt fyrir gífurlegan mannfjölda og öngþveiti. Það er ekki bara aðstandendunum að þakka heldur líka gestum og gangandi. Það er auðvitað stórmerkilegt. Göturnar lokuðust, tjaldsvæðin fylltust, súpan rann niður, klinkið hvarf úr Sparisjóðnum, borgararnir siluðust eftir grillinu {innskot höfundar: hamborgararnir}, Matti söng fiskidagslagið, biðröðin lengdist í kaupfélaginu og rigningin beið til sunnudagsins. Þetta var svona í stuttu máli. Langa útgáfan af helgartjúttinu er fáanleg í öllum betri hljómplötuverslunum.


IceSave reikningarnir góðkunnu halda áfram að leggjast þungt á landsmenn. Sérstaklega þó ráðamenn sem dansa kringum málið líkt og kettir kringum heitan graut. Ekki skrýtið, enda veruleg hætta á að æðislega krúsídúllulega ríkisstjórnin springi í loft upp verði málið ekki afgreitt frá Alþingi eins og Jóhanna og Steingrímur vilja. Nýlenduherrarnir Bretar og Hollendingar rifja á meðan upp gamla takta og hafa örlög hræddrar þjóðar norður í ballarhafi algjörlega í hendi sér. Gordon Brown og Alistair Darling senda íslenskum yfirvöldum puttann og dansa húlla á meðan nauðbeygðir íslenskir skattgreiðendur með sorgarbauga undir augunum hokna enn frekar í herðum undan skuldaklafanum. Samhygð nágrannaþjóðanna er sett í salt vegna þess að fulltrúar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins ulla framan í fjármálaráðuneytið og sitja á sínum feitu sjóðum þegar kemur að því að greiða út lán til Íslendinga. Og þeir sitja á sínum feitu sjóðum og greiða ekki út lán til Íslendinga vegna þess að nágrannaþjóðirnar hafa sett lánveitingar til Íslands í salt. Forkólfar Evrópusambandsins fá evrumerki í augun yfir nýtanlegum fiskistofnum við Íslandsstrendur og ofan á allt saman er Borgarahreyfingin klofin. Dæmigert. Um leið og þjóðin er kosin á þing klofnar hún í herðar niður. Þráinn Bertelsson er að vísu ekki þjóðin en mér er alveg sama.


Auðvitað er ekki hægt að sleppa því að fjalla lítillega um afturgöngu hýrra og öfugra sem fram fór um helgina. Snaröfugir og stuðningsmenn þeirra þrömmuðu öfugir niður Laugaveginn með tilheyrandi bossaköstum og öfuguggahætti. Fram kom í fréttum að þverum og öfugum fjölgi hratt frá ári til árs sem verður að teljast skrýtið í ljósi þess að hommar og lesbíur geta ekki fjölgað sér hjálparlaust. Eða jú, með hjálp hvors annars geta þau það. En þá eru þetta ekki lengur hommar og lesbíur. Talsmaður samkynhneigðra vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið en það litla sem hann sagði kom allt öfugt út úr honum.


Í gleðigöngu fjarri öllu angri,
hýrar lessur stoltar bæði og stuttklipptar.
Öfugir í halarófu langri
hommarnir nú stefna innum bakdyrnar.


Þessi bloggfærsla getur valdið stjórnarslitum ef hún er ekki afgreidd á réttan hátt.


raniE.


Tilvitnun dagsins:
Woody: What's a Freudian Slip?
Cliff: That's when you say one thing when you're actually thinking about a mother.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2009 23:40:56 / einarhaf

Með orðin í buxunum

Skiljanlegu lesendur.


Er þetta nú ekki komið gott, ha? Þarf endilega að blóðmjólka kúnna þar til hún dettur niður dauð? Er ekki óþarfi að sparka í liggjandi mann? Til hvers að knésetja þá sem eru á hnjánum? Hvers vegna er nauðsynlegt að bera vatnið yfir lækinn? Tilgangsleysi allra hluta endurspeglast í raunalegum inngangsskrifum Einars Haf á bloggsíðu sinni. Með öðrum orðum er inngangurinn tilgangslaus og þess vegna best að halda áfram með smjörið.


Eins og Gunni hefur tekið eftir hafa bloggskrif á þessa síðu að mestu legið niðri undanfarið vegna sumarleyfa. Reyndar ekki sumarleyfa hjá mér heldur einhverjum öðrum. Frábært. Hins vegar skal því til haga haldið að undirritaður tók sér verslunarmannahelgarleyfi og endaði það vitaskuld með ósköpum. Hátíðarhöld norðan heiða fóru að mestu vel fram nema hvað að nokkrir kamrar voru brenndir til kaldra kola. Lögreglan rannsakar málið en fullvíst er talið að þeir sem frömdu verknaðinn séu í djúpum skít. Til stóð að bloggsíðan fjallaði afar ítarlega um partístandið á Einari Hafliðasyni um helgina en af því gat því miður ekki orðið þar sem Einar fékk í gegn lögbann á fréttaflutning af málinu – á grundvelli bankaleyndar. Lögbannið nær að vísu bara til bloggsíðunnar og því geta aðrir fjölmiðlar flutt fréttir af málinu ef þeir vilja. Enginn annar fjölmiðill hefur hins vegar viljað flytja fréttir af málinu, enda það afar óáhugavert, og því er þetta líkast til bara úr sögunni.


Sá stórmerkilegi og afar dramatíski atburður átti sér stað í verslunarmannahelgarleyfi bloggsíðuritara að Toyota Corolla Touring Deluxe 91’ árgerð hökti í 300.000 kílómetra. Þessi skemmtilega ryðgaði og létt daunilli eðaljálkur hefur margan malarveginn malað og skotist yfir ófá slitlögin á annars löngum og farsælum akstursferli. Síðustu þúsundir kílómetra hefur borið aðeins á hökti og hiksti í vínrauðu rennireiðinni. Það er ekkert óeðlilegt, enda bíllinn orðinn rúmlega 18 ára (sem jafngildir um það bil 100 mann-árum) og því ýmsir sjúkdómar sem hrjá hann. Þar má meðal annars nefna Parkinsons-veiki, gírkassaslit, afturrúðuþurrkulömun, rifinn liðþófa í áklæði, kasettuflækju, blæðandi bensíntankssár og endaþarmstruflanir. Þrátt fyrir allt þetta heldur rauða undrið áfram að þjóta um vegslóða, innkeyrslur og heimreiðar og mun gera eitthvað áfram sennilega.

1001761small.jpg

Meira af verslunarmannahelginni. Almennt fóru mannfagnaðir vel fram um land allt. Vísindamönnum er hins vegar hulin ráðgáta hverju var verið að fagna, en það er að vísu aukaatriði. Örfáar nauðganir komu inn á borð til lögreglu en engin nauðgun var framkvæmd á borðinu hjá lögreglunni. Meðal nauðgana helgarinnar var nauðgun Árna Jónsen á íslenska þjóðsöngnum sem útvarpað var beint fyrir almanna fé. Og brekkan tók undir.


Vegna lögbanns verður ekki sagt frá því hvernig útrásarvíkingar fengu ekki lánaðar ekki fúlgur fjár ekki úr Kaupþingi gegn veði í ekki engu nema ekki hlutabréfum í Kaupþingi ekki. Jafnframt verður ekki sagt frá því hvernig risastór ekki lán og ábyrgðir ekki stjórnenda og hvað þá millistjórnenda voru ekki felld niður með ekki einu pennastriki. Kaupþing fór ekki á hausinn, það var engum að kenna og enginn ber ábyrgð. Málið er ekki í rannsókn, enda ekki til neinir peningar.


Kúlulán á kúluna oss setti,
og áfram glotta bankastjórasmetti.
Við taka ár án hagnaðar
því flas er ei til fagnaðar.


Fyrir þá sem eru óákveðnir hvað næstu helgi varðar er rétt að benda á að aðeins er um tvennt að velja. Fara til Dalvíkur á Fiskidaginn mikla eða fara í Afturgöngu hýrra og öfugra í Reykjavík. Ykkar er valið.


Þessi bloggfærsla er meira virði en hlutabréf í Exista.


Einar með 320 milljarða króna kúlulán. Afskrifað. Múhahahah.


Tilvitnun dagsins:
Peter Griffin: Boo Lois, yeah beer!

» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 73983