|
|
26.10.2009 16:59:48 / einarhaf
Uppnumdu lesendur.
Þetta er ótrúlegt, ég veit. Munnræpa, kjaftavaðall, uppspuni, meiriháttar bull, ofmælgi, orðskrúði, tungulipurð og heilabrot. Allt við sama heygarðshornið þegar bloggarinn Einar Haf snýr aftur eftir auglýsingahlé. Útvarpsfréttir verða lesnar í dagskrárlok. Skjár einn er næstum því alltaf ókeypis, aðrar sjónvarpsstöðvar eru óborganlegar í orðsins fyllstu merkingu. Þetta kemur því allt á sama stað niður. Bloggsíða Einars Haf einokar sviðið nú sem áður og lætur lesendur velkjast í vafa sem aldrei fyrr. Þeir sem vita um hvað þessi inngangur fjallaði eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við upplýsingar.
Þið vitið mæta vel hvað kemur næst. IceSave samningurinn. Mikið rétt. Það mál er ekki til lykta leitt. Þó vissulega stefni allt í að Íslendingar verði teknir í ósmurðan æðri endann eins og lengst af í þessu máli. En þið vitið hvað máltækin segja. IceSave verður ekki í askana látið. Sjaldan fellur eplið langt frá IceSave. Betri er einn fugl í hendi en tveir í IceSave. Ég má muna minn IceSave fegurri. Það er vont að vera milli steins og IceSave. En þetta var nú reyndar komið fram fyrir nokkrum bloggum síðan svo það er óþarfi að velta lesendum upp úr þessu aftur. Nú horfir sem sagt þannig í IceSave málinu að það verði samþykkt eftir nokkrar umræður á Alþingi og þá tekur við betri tíð með blóm í IceSave. Nei og þó. Þá taka við endalausar vaxtagreiðslur, raunlaunalækkun og botnlaust volæði sem endar auðvitað bara með því að við förum á helaumt IceSave-ið. Guð sé oss næstur. En þið vitið hvað sagt er. Reis á þriðja degi aftur upp frá IceSave. Var þetta ekki svoleiðis annars?
Kjötreyking er nú hafin að fullum krafti hér á Urðum og raunar víðar. Þetta kann að skjóta skökku við hjá þeim sem ekki hafa kynnt sér málið þegar höfð eru í huga slagorð á borð við reykingar drepa og reykingar eru heilsuvandamál. Þar er hins vegar átt við tóbaksreykingar en hvað kjötið varðar er um fyrsta flokks taðreykingu að ræða. Það eru engar nautahægðir (e. bullshit) heldur ekta þurr kindakúkur í neytendavænum stykkjum. Bragðið af kjötinu leynir sér heldur ekki. Betra gerist það varla.
Eins og greint var frá nýverið gegni ég um þessar mundir starfi hjá KPMG á Akureyri í bókhaldi og öðru því tengdu. Þar hef ég reynt að innleiða skuldbreytingu í bókhaldið en það hefur mælst misvel fyrir. Forstjóra Exista leist að vísu vel á aðferðina en með því að margfalda gegnum ársreikning Exista fyrir árið 2008 með (-1) fékk ég út hagnað fyrirtækisins á síðasta ári upp á 206 milljarða króna. Málið er til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu.
Þessa dagana þykir móðins að rifja upp gamlar syndir úr fortíðinni er tengjast hinu meinta íslenska góðæri. Öllum steinum skal velt við í þeim tilgangi og engum hlíft. Nýjasta dæmið er rannsókn á bréfaskrifum forseta Íslands á góðæristímanum þegar hann, eins og fleiri, fór fögrum orðum um íslenska ofurhuga sem hver á fætur öðrum hösluðu sér völl í alþjóðlegu viðskiptalífi. Í kjölfar þess að hluti bréfa forsetans var gerður opinber kom fram krafa um að bloggsíða Einars Haf léti sitt ekki eftir liggja og týndi til mis-gáfuleg ummæli úr fortíðinni er tengjast lofi á íslenska efnahagsundrið. Það er hægur vandi, enda ekki við öðru að búast en einstaklingur sem lagði stund á viðskiptafræðinám á árabilinu 2005-2008 hafi haft eitthvað jákvætt um íslenska efnahagsundrið að segja. Þessa sláandi tilvitnun má finna í bloggfærslu sem birt var hér á bloggsíðunni þann 13. nóvember 2007: {...föstudagskvöldið var lagði ég leið mína með öðrum háskólanemum í vísindaferð og var ferðinni heitið í Glitni. Eftir kynningu á fyrirtækinu tók við almennt snakk, enda var almennt snakk á boðstólnum. Hægt var að raða í sig kjúklingi í sósu, nautakjöti, ísbollum og ristabrauði með rækjum og sveppum. Glitnismenn fá hrós fyrir metnaðarfullar veitingar, enda hef ég yfirleitt ekkert fengið nema brjóstsykur í þau fáu skipti sem ég hef heimsótt fyrirtækið.} Þrátt fyrir þessi smánarlegu ummæli, í ljósi þess sem síðar gerðist, ætla ég ekki að segja af mér. Ekki frekar en forsetinn.
Yfir sviðið horfi hryggur, hræddur með hor í nefi tárast, raunamæddur. Allt sem áður þótti snjallt og klárt í dag er bæði smánarlegt og sárt.
Enginn maður örlög sín fær flúið, fyrir löngu gamanið er búið. Sumir verða brenndir, aðrir hengdir hinir heppnu kannski verða flengdir.
Þrautir lífsins eru margvíslegar, skemmtilegar sem og alvarlegar. Hættum bara að hugsa um kvöl og grátur slátrum kindum og tökum slátur.
Þessi bloggfærsla inniheldur fjölmörg lífsnauðsynleg vítamín og steinefni.
Einar fullur iðrunar. Eða kannski bara fullur.
Tilvitnun dagsins: Ross: You know what? I´d better pass on the game. I´m just gonna go home and think about my ex-wife and her lesbian lover. Joey: The hell with hockey. Let's all do that.
»
19.10.2009 20:55:32 / einarhaf
Aflátnu lesendur.
Er ekki kominn tími til að tjútta? Stíga á stokk og trylla lýðinn? Rífa sig úr fötunum, skrifa undir IceSave samninginn og dansa fugladansinn? Nei, alls ekki. En það breytir því þó ekki að ný bloggfærsla frá Einari Haf er væntanleg á hverri stundu. Ha bíddu, er bloggfærslan ekki byrjuð? Jú líklega. Á þetta að halda áfram svona lengi? Hver heldur þú að nenni að lesa inngang þar sem Einar Haf talar í hringi við sjálfan sig? Ég nenni því. En ég heiti reyndar Einar Haf svo það er ekkert skrýtið. Ég veit líka að Magni og Gunni eru að lesa spenntir en spurning með aðra. Þessi inngangur var í boði félags einhverfra bloggara.
Blessaður IceSave samningurinn heldur áfram að vera aðal umfjöllunarefni fjölmiðla, fjölmiðlaáhugamönnum til mikillar armæðu. Lengi hefur séð til lands í hinni svokölluðu IceSave deilu og oft hafa málin verið að klárast eftir helgi eða fyrir mánaðarmót en samt sem áður hefur hvorki gengið né rekið. Nýjustu fréttir af málinu benda hins vegar til þess að fyrirvörum Alþingis hafi verið kastað fyrirvaralaust útbyrðis og eftir standi berstrípaður lánasamningur sem fulltrúar íslenskra stjórnvalda hafa undirritað með glöðu geði. Málinu er hins vegar auðvitað ekki lokið þar sem Alþingi á eftir að fjalla um málið aftur og nýbúið og hver veit nema það eigi allt eftir að sigla í strand aftur. Persónulega get ég vart hugsað til þess að IceSave málinu ljúki enda myndu allar bloggfærslur á þessari síðu styttast til muna í kjölfarið.
Ótal mörg fyrirmenni, margmenni, fjölmenni, vélmenni og góðmenni hafa lagt leið sína undanfarna mánuði að skoða og dást að innviðum og útveggjum Urðakirkju. Er þetta ekki að ástæðulausu enda varla ár liðið síðan óheyrilega umfangsmiklum endurbótum á kirkjunni lauk. Síðastur í langri röð þessara fyrirmenna var nýskipaður Seðlabankastjóri, sem kom askvaðandi ásamt stjórnarformanni Sparisjóðs Svarfdæla síðastliðinn laugardag. Fyrir svörum var sjálfskipaði kirkjuvörðurinn Einar Haf sem lét til leiðast og lauk upp dyrum guðshússins með tilþrifum. Eftir að hafa tekið í hendina á Seðlabankastjóra og hrist rækilega gat ég upplýst hina tignu gesti um hitt og þetta tengt kirkjunni, sagt frá kirkjurokinu, altaristöflunni og predikunarstólnum auk þess sem að sýna þeim krukkuna með heilögum anda sem geymd er inn í orgelinu. Dramatískar aðgerðir hefðu verið að læsa kirkjunni og hleypa Seðlabankastjóra ekki út fyrr en búið yrði að lækka stýrivextina, nú eða að leggja Massey Ferguson 135 þvert fyrir Land Cruiser jeppann sem gestirnir óku. Þetta gerði ég hins vegar auðvitað ekki heldur kvaddi gestina með virktum, vinkaði þeim, signdi mig og sagði amen.
Eins og lesendur hafa ef til vill tekið eftir eru eintómar jákvæðar fréttir í fjölmiðlum nú um stundir. Mannskæð svínaflensa, skuldaklafi þjóðarinnar og IceSave, 206 milljarða tap Exista, skattahækkanir, niðurskurður, manndráp og hörmungar í útlöndum, ofreynsla í BootCamp, þjófaplága á höfuðborgarsvæðinu og áskrift að Skjá einum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það verða aðallega aldraðir og öryrkjar sem koma til með að borga undir uppbyggingu Íslands næstu árin og áratugina og stuðla þannig að hinu nýja Íslandi – enda er sparifé aldraðra framtíð landsins.
IceSave engu eyrir og engum gefur grið, hætt er við að aldrei skapist friður. Ef þið ekki gefið mér fimm mínútna frið ég aldrei næ að sturta þessu niður.
Að lokum vill undirritaður koma því á framfæri að hann harmar að sóttvarnarlæknir telji kirkjuverði og bloggsíðuritara ekki tilheyra undirstöðuhópi samfélagsins sem þurfi á svínaflensubóluefni að halda sem allra fyrst.
Þessi bloggfærsla á meira eigið fé en Exista.
Einar í tjóninu.
Tilvitnun dagsins: Davíð Oddsson: Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna.
»
13.10.2009 23:08:23 / einarhaf
Skilanefndarlegu lesendur.
Það er eins og við manninn mælt, mælirinn er fullur og Einar Haf líka í þessari nýjustu útgáfu blogghrollvekjunnar um allt sem miður hefur farið og miður mun fara í íslensku samfélagi. Bloggfærslan er rituð að tilstuðlan skilanefndar Landsbankans en um þúsund manns með sérfræðimenntun eru þessa dagana í vinnu á hennar snærum að rannsaka allt gengdarlausa bruðlið hjá gamla Landsbankanum. Meira um það síðar en fyrst þetta.
Lesendum þessarar síðu hefur um nokkurt skeið ekki þótt undirritaður koma innihaldi bloggfærslna sinna nægjanlega vel til skila. Ekki þarf að leita lengra en í inngang þessarar bloggfærslu til að sannfærast um það. Eins hefur verið talinn til fjöldi greinarskila sem virðast ekki skila sér heldur. Til að koma þessu til skila hefur því verið skipuð skilanefnd yfir bloggsíðunni sem ætlað verður að skila af sér fullkomnari og aðgengilegri bloggfærslum fyrir vikið. Í skilanefndinni starfa á annað hundrað manns, bæði hérlendis og erlendis. Á vegum skilanefndarinnar starfa meðal annars óháðir málfarsráðunautar, sprenglærðir íslenskufræðingar, greinarmerkjasérfræðingar, faglærðir textagerðarmenn, rithöfundar, skáld og kokkur. Því þetta fólk þarf jú allt að borða. Reyndar er ekki útilokað að Einar Haf sjálfur fái vinnu hjá skilanefndinni, enda fordæmi fyrir því hjá skilanefndum íslensku bankanna að ráða grunsamlega einstaklinga og hvítflibbaglæpamenn til hálaunastarfa. Litlar sem engar líkur eru taldar á því að skilanefnd bloggsíðunnar skili ásættanlegu verki og því er hugsanlegt að Einar Haf taki aftur alfarið við þegar kemur að næstu bloggfærslu. Jafnvel strax í næstu efnisgrein.
Vissi það. Eins og fram hefur komið í fréttum er sláturtíð nú langt á veg komin, enn einu sinni. Bændur sem margir hverjir hafa verið blóðugir upp að öxlum við niðurskurð búfjár undanfarið geta brátt varpað öndinni léttar, það er að segja ef ekki er búið að slátra öndinni. Darraðardansinum er hins vegar hvergi nærri lokið þó hnífurinn standi í lambinu enda taka þá við hlutir eins og sláturgerð, sögun, úrbeinun, upphenging, taðreyking og hraðsteiking – svo dæmi sé tekið. Ekki eru allir á einu máli um hvort bændur hafi riðið feitum hesti frá sláturtíðinni þetta skiptið – enda skiptir það ekki máli þar sem búið er að slátra feita hestinum. Útflutningur á kjöti hefur aukist eftir að þeim ljónum sem voru í veginum var slátrað. Sláturleyfishöfum hefur þar af leiðandi vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár en að vísu er búið að slátra fisknum. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa tekið bændur til fyrirmyndar í þessum efnum og gefið það út að þeir muni halda áfram að slátra þeim ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem hafna IceSave samningunum. Að lokum má nefna að ég er hættur að geta flengt apann eftir að honum var slátrað, en það er allt önnur saga. Fyrir þá sem vilja fræðast meira um sláturtíðina er rétt að benda á þríleikinn Lömbin þagna 1 (e. Silence of the Lambs), Lömbin þagna 2 – Sauðaþjófurinn kindarlegi (e. Silence of the Lambs 2 – The Sheepthief That Looked Kind) og Lömbin þagna 3 – Leitin að gullnu hrútspungunum (e. Silence of the Lambs 3 – The Quest for the Golden Sheep Testicles).
Og þá að léttara hjali. Efnahagshruninu. Hélduð þið virkilega að ekkert yrði fjallað um það í þessari bloggfærslu? Það er að vísu ekkert nýtt að frétta af hruninu. Rústirnar eru alveg jafn rjúkandi og síðast. Saksóknarinn sérstaki heldur áfram ótrauður að grafa upp eitthvað misjafnt um útrásarvíkingana og gengur ágætlega að eigin sögn. Með honum í liði eru þaulvanir gröfumenn og nokkrir bændur sem eru vanir skítmokstri. Á meðan því fer fram náði gamli Landsbankinn góðum samningum við nýja Landsbankann. Eða öfugt. Þetta er hvort eð er sama fólkið.
Barrack Obama, forseti Bandaríkjanna, hlaut nýlega friðarverðlaun Nóbels sem sárabót fyrir að hafa ekki hlotið Ólympíuleikana 2016. Með útnefningunni vonast Nóbelsverðlaunanefndin til þess að Obama verði til friðs áfram.
Kötturinn minn kveisu fékk innandyra lengi hékk og sama hvað hann grátbað að endingu var honum slátrað.
Gullfiskurinn synti í hringi sú hegðun líktist vitleysingi og sama hvað hann grátbað að endingu var honum slátrað.
Hundurinn með hávært gól minnti helst á fatlafól og sama hvað hann grátbað að endingu var honum slátrað.
Haninn minn í krummafót ekki komst á þorrablót og sama hvað hann grátbað að endingu var honum slátrað.
Auðmaður með gildan sjóð öllu undir koddann tróð og sama hvað þjóðin grátbað auðmanninum var ekki slátrað.
Þessi bloggfærsla var ekki einu sinni tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels.
Einar að skila sér.
Tilvitnun dagsins: Homer Simpson: Lisa, Vampires are make-believe, like elves, gremlins, and eskimos.
»
08.10.2009 22:29:22 / einarhaf
Mjög svo kæru lesendur.
Þessi bloggsíða ætlar ekki að vera neinn eftirbátur annarra fjölmiðla þegar kemur að því að rifja upp atburðina sem urðu fyrir ári síðan þegar íslenska bankakerfið fór á hliðina. Þar af leiðandi – og alls ekki að beiðni lesenda – tók síðuritari saman í stuttu máli það sem átti sér stað þessa örlagaríku daga fyrir ári síðan. Því það er ekki eins og annar hver kvikmyndagerðarmaður á landinu hafi sent frá sér eða sé að senda frá sér mynd um efnahagsástandið.
Langt fram eftir september 2008 Allt í himnalagi. Bankarnir standa traustum fótum að sögn bankastjóranna. Arabískur sjeik með súkkulaðibragði kaupir stóran hlut í Kaupþingi með láni úr Kaupþingi teknu gegn veði í hlutabréfum úr Kaupþingi. Lárus Welding, bankastjóri Glitnis, segir útilokað að sinn banki fari í þrot, enda hljóti maður sem verður gráhærður fyrir þrítugt að kunna að reka banka. Blikur á lofti í efnahagslífi heimsins og stórar lánalínur til Íslands slitna.
29. september 2008 Íslenska ríkið gleypir Glitni með 75% húð og smá hári. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri slær Jón Ásgeir svo fast á bossann að höndin á Davíð verður blá. Jón Ásgeir talar um stærsta bankarán Íslandssögunnar en gleymir því þegar honum og vinum hans voru gefnir bankarnir nokkrum árum áður. Enginn hefur heyrt minnst á IceSave. Þjóðin veit ekki hvað er að gerast. Auðmenn og útrásarvíkingar keppast við að millifæra eins mikið af peningum og þeir geta í erlend skattaskjól. Í þessu sambandi er rétt að taka fram að þegar sagt er að fokið sé í flest skjól er ekki verið að tala um skattaskjól. Þar er alltaf logn og 30 stiga hiti.
30. september 2008 Stíf fundarhöld um ástandið halda áfram þar sem Geir Haarde forsætisráðherra er innsti koppur í búri. Lausafjárkreppa skellur á. Bændur hætta öllum fjár-útlátum og hafa kindurnar inni. Krónan er lögð inn á gjörgæsludeild með vaxtaverki á háu stigi. Hluthafar í Glitni breytast í fyrrverandi hluthafa. Staða Kaupþings og Landsbankans er býsna sterk, samkvæmt bankastjórum Kaupþings og Landsbankans. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri flytur frumsaminn einþáttung á ríkisstjórnarfundi sem ber heitið ,,Allt bankakerfið á hausnum innan tveggja til þriggja vikna”. Ríkisstjórninni þótti flutningur Davíðs á verkinu alltof dramatískur.
6. október 2008 Ástandið hefur gerjast mikið síðan 30. september en samt veit þjóðin lítið sem ekki neitt um hvað er að gerast. Geir Haarde forsætisráðherra sér fram á þjóðargjaldþrot þar sem viðskiptabankarnir muni sökkva þjóðarskútunni. Hann blessar Ísland í beinni útsendingu en enginn fattar meininguna. 40 af 67 millistjórnendum í Kaupþingi skrá eignir sínar á eiginkonurnar. Millistjórnendurnir höfðu skömmu áður allir fengið niðurfelldar persónulegar ábyrgðir vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Fólki þótti sú aðgerð jafn fyndin og Kaupþingsauglýsingarnar sem John Cleese lék í voru dýrar.
7. október 2008 Ríkið tekur yfir Landsbankann og hættir við að kaupa hluta í Glitni og tekur hann yfir eins og hann leggur sig. Lárus Welding leggur sig. IceSave er enn langt út í hafsauga.
8. október 2008 Bretar nota sambönd sín við veðurguðina og frysta eignir Landsbankans og Kaupþings í Bretlandi eins og þær leggja sig. Þjóðin veit ekki sitt rjúkandi ráð. Öruggir peningamarkaðssjóðir viðskiptabankanna gufuðu upp. Íbúar á landsbyggðinni halda áfram að bíða eftir góðærinu.
9. október 2008 Þrennan er fullkomnuð þegar ríkið tekur Kaupþing yfir. Bankastjórar gömlu viðskiptabankanna biðjast ekki afsökunar, enda voru það ekki þeir sem klikkuðu heldur regluverkið. Regluverkið biður ekki afsökunar. Þjóðin er enn engu nær um neitt.
6. október 2009 Ár er liðið en enginn hefur enn verið dreginn til ábyrgðar vegna hrunsins. Sérstakur saksóknari segir að það sé ekkert sérstakt en vonast þó eftir því að nú fari að draga til tíðinda. Krónan liggur enn á líknardeild, bundin við sjúkrarúm. Forsætisráðherra biður þjóðina afsökunar. Og svo snúa allir sér í hring.
Enginn auðmaður varð gjaldþrota við gerð þessarar samantektar. Hrunið í Ólafsfjarðargöngunum er ekki talið tengjast bankahruninu á nokkurn hátt.
Ekki er útilokað að þessi sami pistill birtist nánast óbreyttur í næsta tölublaði Bæjarpóstsins. Það fer eftir ritskoðun.
Einar að hruni kominn.
Tilvitnun dagsins: George Costanza: You know I always wanted to pretend I was an architect.
»
02.10.2009 23:22:32 / einarhaf
Hugnanlegu lesendur.
Það andar köldu nú um stundir og skyldi engan undra. Að minnsta kosti ekki ef marka má veðurstofuna. Kuldahrollurinn nær þó nýjum hæðum á skalanum þegar Einar Haf skrúfar frá kalda vatninu og gusar yfir lesendur sína á afar fagmannlegan hátt. Enginn er verri þó hann vökni en Einar Haf er hins vegar eitthvað verri ef hann heldur að þessi torskilda líking hafi komist til skila hér í innganginum. Rosalegur kuldi er þetta, kuldinn stafar sennilega af frostinu.
Nokkrar sviptingar hafa orðið undanfarna daga í stjórnmálaheiminum. Gamla góða IceSave tuggan – sem þingmenn virðast jappla á aftur og aftur – er enn og aftur milli tannanna á fólki. Auðvitað er hún milli tannanna á fólki, hvar annars staðar ætti tuggan að vera? Eitthvað stóð þetta þó allt í Ögmundi Jónassyni og það endaði með því að hann skundaði út úr heilbrigðisráðuneytinu. Á meðan talar ríkisstjórnin einni röddu en Össur Skarphéðinsson talar hins vegar tungum í viðræðum sínum við Breta og Hollendinga. Eins og þið sjáið er mikið að gerast. Steingrímur Joð er hress að vanda en hann hefur nú opinberað fjárlagafrumvarpið alræmda. Í frumvarpinu kemur fram að þeir sem eru með breið bök þurfi framvegis að borga meira en þeir sem eru með mjó bök. En það er ekki það eina. Sérstakir skuldaklafar verða sendir inn á hvert heimili í landinu en með þeirri aðgerð vonast fjármálaráðuneytið eftir því að fólk aðlagist betur þegar þarf að byrja að borga af IceSave skuldinni eftir sjö ár. Í fjárlögunum kemur einnig fram að læknar þurfi framvegis að skera niður en ekki skera upp, dómarar þurfi framvegis að skera niður en ekki skera úr um vafaatriði og að bakarar á vegum hins opinbera þurfi framvegis að skera niður allt brauð en það er reyndar engin breyting á núverandi fyrirkomulagi. Hin hliðin á fjárlagafrumvarpinu snýr að aukinni skattbyrði almennings, enda engin sanngirni í því að bara auðmenn og útrásarvíkingar geti með góðri samvisku lýst sig gjaldþrota. Fyrirhugaðar eru breytingar á núverandi skattkerfi með allskonar útfærslum og millifærslum og tilfærslum og þar fram eftir götunum en það eru auðvitað allt tæknileg atriði sem almenningur á bágt með að skilja nokkuð í. Þó er hægt að lofa almenningi því að skattayfirvöld fara ekki í manngreinarálit og skattpína hvern og einn jafn vel og innilega. Meðfylgjandi fjárlagafrumvarpinu fylgdi sprenghlægileg spádóma-brandarabók úr smiðju spaugaranna í fjármálaráðuneytinu en meðal brandara í þeirri bók eru fyndnar fullyrðingar um að ástandið skáni á næsta ári, vextir lækki, verðbólga mælist 5% og ríkissjóður verði rekinn hallalaus í nánustu framtíð.
Og þá að persónulegum tíðindum. Nei, ekki þau tíðindi að ég sé nýbúinn að fara á klósettið heldur þau tíðindi að bókhaldsfyrirtæki hafi sýnt því áhuga að ráða mig til starfa. Jú jú, ég er viðskiptafræðiplebbi og allt það en þjóðfélagsástandið er bara svo svakalegt. Nýverið bauð KPMG á Akureyri mér sem sagt að koma til starfa í 3 mánuði til reynslu og sjá svo til í framhaldinu. Hyggst ég þiggja boðið og mæta til starfa reiðubúinn að gera mitt besta samhliða því að gegna í hjáverkum almennri vinnumennsku og sjálfboðaliðastarfi í Svarfaðardal sem ég hef sinnt leynt og ljóst fram til þessa. Sama dag og mér var tilkynnt um ráðninguna var gerð húsleit hjá KPMG en ég veit ekki hvort það var tilviljun eða ekki.
Nú um helgina eru stóðréttir í Svarfaðardal með tilheyrandi hrossabrestum, hríðarfjúki og frosnum kaffiskúr kvenfélagsins. Einnig verður réttardansleikur haldinn í félagsheimilinu Rimum þar sem hestafýlan mun svífa yfir vötnum. Eða gólfum öllu heldur. Ég er ekki hestamaður en folaldakjötið í kvöldmatnum áðan var ljúffengt. Það var skorið niður – höfum það alveg á hreinu.
Brátt skal klabbið skera niður spilaborg til falls nú riður vont það verður fyrir yður þykir mér það verr og miður en bráðum skellur á ófriður frá klósettinu heyrist kliður því rétt í þessu ég sturtaði niður það er góður mannasiður.
Enginn útrásarvíkingur varð gjaldþrota við gerð þessarar bloggfærslu.
Einar niðurskorinn.
Tilvitnun dagsins: Þulur: Frá Peningaráðgjafarþjónustunni. Höfum lokað í dag vegna gjaldþrots. Peningaráðgjafarþjónustan.
»
|
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 74132
|