Einar meinar margt og mikið
Könnun
Lest þú þessa bloggsíðu?

03.02.2010 23:43:37 / einarhaf

Orðið met í metorðastigann

Kærleiksríku lesendur.


Fagur er fiskur í sjó. Bóndi er bústólpi, bú landstólpi. Bloggið verður ekki í askana látið. Öllu heldur verður bloggið í vaskana látið en það gæti auðvitað farið illa ef gleymist að setja tappann í vaskinn því þá gæti bloggið farið í vaskinn. Þetta er augljóst en jafnframt þreytandi og leiðinlegt þannig að ég legg til að við hlaupum yfir innganginn og snúum okkur beint að því sem er mest skemmtilegast samkvæmt viðhorfskönnun sem gerð var meðal lesenda. Það er að ýta á litla x-ið sem er lengst uppi í hægra horninu á tölvuskjánum þegar þeir lesa bloggið hans Einars Haf. Dæmi nú hver fyrir sig.


Nýverið hafa spunnist allnokkrar umræður um aðkomu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að umdeildum viðskiptum sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Málsatvik eru ekki með öllu ljós en samkvæmt heimildum bloggsíðunnar er talið að Bjarni hafi setið í stjórn félags sem gekkst í ábyrgð fyrir annað félag sem átti hlut í öðru félagi þar sem sátu í stjórn félagar Bjarna sem könnuðust við félag sem var í eigu Glitnis sem dældi peningum í Milestone sem átti hlut í öðru félagi þar sem Bjarni sat í stjórn fyrir hönd hluthafa í öðru félagi. Þegar Bjarni útskýrði þetta fyrir Helga Seljan í Kastljósinu runnu á hann tvær grímur. Ekki er vitað hvernig grímurnar tengjast málinu. Sérfræðingar sem bloggsíðan hefur rætt við vegna málsins telja að Bjarni hafi verið flæktur í svokallaðan skuldavafning, sem var mjög algengt á tímum góðærisins. Menn eru ekki á einu máli um hvort vafningurinn geti vafist fyrir Bjarna síðar meir hvað varðar pólitíska stöðu en hins vegar eru menn á einu máli um að þessari efnisgrein hjá Einari Haf þurfi að ljúka sem allra allra fyrst.


Um liðna helgi blótuðu búandi og brottfluttir Svarfdælingar þorrann í sand og ösku á árlegu Þorrablóti Svarfdælinga sem haldið var að Rimum. Eins og ævinlega var þétt setinn Svarfaðardalur, með um og yfir 300 manns í gleðigírnum smjattandi á súrum hrútspungum og hlustandi á Sölva á Hreiðarsstöðum flytja annálinn af sinni alkunnu snilld. Að því loknu upphófst heljarinnar dansleikur þar sem ýmsir stigu á stokk og létu að sér kveða. Sjálfur tók ég þátt í öllu saman og meiru til, eftir að hafa útvistað sjoppuafgreiðslumannsembættinu og siðgæðisvarðarstöðunni til miklu ódýrara vinnuafls. Innkoman í sjoppunni var þónokkur en ágoðinn verður sennilega nýttur til leikmannakaupa. Eða risnu gjaldkera, það á eftir að koma í ljós. Gunnar á Göngustöðum hefur tekið að sér að innheimta ógreiddar sjoppuskuldir með álagi, dráttarvöxtum, seðilgjaldi, uppgreiðslugjaldi og áföllnum lögfræðikostnaði og því er útlitið verulega bjart um þessar mundir hvað varðar fjárhagsstöðu sjoppunnar. Hvað varðar Þorrablótið fjaraði það út á dansgólfinu um klukkan 03:35 og þá hélt hver og einn til síns heima. Hluti framdælinga ferðaðist heim með rútu, enda óvenju séðir. Ég var auðvitað þar á meðal. Þar af leiðandi stóð Toyota Corolla Touring Deluxe BabeMagnet árgerð 1991 með slöppum rúðuþurrkum og bilaðri stöðumælaklukku bara heima á hlaði og skartaði sínum fallega bláa 11 límmiða, fjarri skarkala skemmtanalífsins.


Úr heimi íþróttanna er það helst að frétta að stutt er í að vetrarólympíuleikarnir í Vancouver í Kanada hefjist. Verulegrar tilhlökkunar er farið að gæta meðal skíðamanna, brettamanna, skautadansara, skautahlaupara, skíðaskotfimimanna, Stiga-sleðamanna, snjókalla og annarra sem finnst gaman að detta á rassinn og/eða láta sig vetraríþróttir varða. Mótshaldarar segja að allt sé að verða reiðbúið fyrir stóru stundina og raunar sé aðeins eitt smávægilegt smáatriði sem upp á vanti svo allt geti talist klárt. Það vantar snjóinn. Snjóleysið gæti hugsanlega sett strik í reikninginn í þeim keppnisgreinum þar sem snjós er krafist, svo sem skíðakeppninni og snjóhúsagerðinni. Hérlendir sérfræðingar í frystingu lána hafa verið sendir út til Kanada þar sem þeir munu reyna að bjarga því sem bjargað verður. Að öðru leyti hefur málið verið sett á ís þar til annað kemur í ljós. Sjálfur hætti ég við að skrá mig til keppni í listdansi á skautum, enda finnst mér alveg nóg að vera á hálum ís hér á einarhaf.blogcentral.is. En það er bara mín skoðun.


Í Vancouver er enginn snjór,
og enginn veit neitt hvert hann fór,
skíðafólkið strand í auðum brekkum.
Blótum Þorrann, étum, drekkum.


Engum IceSave-lögum var synjað staðfestingar við gerð þessarar bloggfærslu.


Einar snjólaus.


Tilvitnun dagsins:
Moe: I've been called ugly, pug ugly, fugly, pug fugly, but never ugly ugly
Magni Þór skrifaði
Ég var einmitt að frysta nokkra klaka í klakaboxinu mínu og hyggst senda þá með flugpósti til Vancouver. Nú verða allir að hjálpast að svo við getðum séð Íslendingana enda á topp 50 listanum :D
Gunni skrifaði
Lesið, var Einar Haf samt ekki aðaldansararinn á þorrablótinu?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 74132